Auglýsing

Innskráningar kubbur

Jæja...

01. apríl 2009 klukkan 22:43
Kæri árgangur 83.

Í  tilefni að því að heill áratugur er liðinn frá því að við útskrifuðumst úr Grunnskólanum  á Ísafirði langar okkur að halda „hitting" í vor.   Það var skipuð  nefnd og því ekkert annað  að gera  en að hefjast handa.   Helgin 22 -24 maí varð fyrir valinu og hugmyndin er þessi:

22.maí - föstudagskvöld:   Upphitun, myndasýning, til að rifja upp kynnin og hrista hópinn saman.   Gengið frá lausum endum fyrir laugardaginn. Staðsetning auglýst síðar.

23. maí- laugardagur:  11:50 er mæting á Silfurtorg.  Við eyðum svo deginum í  ýmiskonar endurminningar og skemmtun.   Ratleik, leiki og athugum hvort að keppnisskapið sé ekki enn til staðar.  Áætlað er að þeirri dagskrá verði lokið um 17:OO. 

Eftir það gefst tími til að sinna sínu og hafa sig til fyrir kvöldið. 

Um kvöldið hittumst við svo aftur kl. 20:00 Í Guðmundarbúð(salur björgunarsveitarinnar á Ísafirði), þar sem að við borðum saman og skemmtum okkur  fram eftir kvöldi. 

Kostnaður fyrir hvern og einn ætti ekki að vera mikill, en til að geta reiknað hann út viljum við biðja ykkur um að tilkynna á facebooksíðunni fyrir 21. apríl hvort þið ætlið að mæta á atburðinn eða ekki . 

Endilega láta heyra í  sér ef einhver hefur hugmyndir að skemmtiatriðum fyrir laugardagskvöldið, eins ef einhver á myndir frá grunnskólaárunum til að deila með okkur hinum.

Allar upplýsingar og fréttir verða settar inná Facebook síðuna og bloggið: grísó83.bloggar.is Endilega verum sem virkust þar og vonandi sjáumst við sem flest í vor.

                                        Kveðja

                                           Nefndin svokallaða.

 

Rejúníón

19. mars 2009 klukkan 14:23
Jæja, ég set líka hérna inn litlu tilkynninguna frá hinni sjálfskipuðu nefnd...helgin 22.-24. maí hefur orðið fyrir valinu vegna rejúníóns sem á að halda.  
Það er um að gera að reyna að virkja svolítið þessar síður sem við höfum, þessa og facebook síðuna, þar sem fólk er eindregið hvatt til að segja sína skoðun á þessu öllu saman.  Nú þegar hafa nokkrir tekið vel í þessa dagsetningu og skrifað hana inná dagatalið hjá sér ég mæli með því að ÞÚ gerir það líka! Cool

Koma svo krakkar og láta vita af sér, eins ef það eru einhverjir sem þið vitið um sem ekki eru skráðir í grísó83 grúppuna á feisinu þá er um að gera að bjóða þeim!

Með von um góðar viðtökur
Róslaug

Takk fyrir gott partý og SMJÖRVA

06. september 2008 klukkan 11:24
Takk æðislega fyrir gott partý í gær .... já og smjörvan sem ég var að finna í veskinu mínu :D Þætti gaman að vita hver lét hann þar hehe :)

.:Dagný:.

Árgangur 1983 lyftir sér upp....

26. ágúst 2008 klukkan 22:54
PARTY - PARTY - PARTY
Jæja kæru börn.

Föstudaginn 5. september n.k. er ætlunin að gera sér glaðan dag í tilefni af því að við erum svo frábær. Hugsunin er að reyna að hóa saman öllum úr árgangnum sem búsettir eða staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og skemmta sér saman. Engu máli skiptir hvort fólk útskrifaðist með okkur eða hreinlega sat bara eina kennslustund, allir eru velkomnir.

Við höfum reynt að ná til sem flestra en eigum þó langt í land með að ná til allra. Því leitum við á ykkar allra náðir til að láta fagnaðarerindið berast og auglýsa þessa síðu eins og viltir hanar.

Staðsetning: Marargata 2, 101 Reykjavík.
Mæting: Föstudagurinn 5. september upp úr klukkan níu.
Skráning: Óþörf, en væri samt gaman ef fólk meldaði sig hér í athugasemdakerfið svona til að sjá hverjir koma og hverjir ekki.
Gott að koma með: Eitthvað til að svala þorstanum og verða skemmtilegri.

Ef þið eruð í einhverjum vandræðum hafið þá samband við Brynjar eða Þórunni. Þið finnið okkur í símaskránni.

Okei - ekki vera svo félagsskítur, reyndu að drattast í boðið og haga þér vel.

Gleðskapur...

11. ágúst 2008 klukkan 21:57
Jæja! Nú er fyrirhugað að halda gleðskap fyrir þá meðlimi árgangsins sem búa eða eru staddir á höfuðborgarsvæðinu. Áætluð dagsetning er föstudagurinn 5. september. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur - nú reynir á að orðspor síðunnar fari víða og til þeirra sem ekki vita enn af henni.

Brynjar

mannstu gamla daga...

31. júlí 2008 klukkan 23:32































-takk fyrir myndirnar biggi!
-Hvar er brynjar?

kv, Tóta

Bloggsíður

26. júlí 2008 klukkan 14:40
Væri nú ekki aldeilis skemmtilegt ef þeir sem eru svo tæknivæddir að vera með bloggsíður setji slóðina á þær inn í upplýsingarnar um sig?


Harpa Henrýs

Að gefnu tilefni....

16. júlí 2008 klukkan 14:55
... Til að fyrirbyggja allan misskilning þá eru upplýsingar eða nafnalistinn með árgangnum sem settur var á síðuna í vor fenginn úr nafnalista Grunnskólans á Ísafirði vorið 1999. Að sjálfsögðu er heimilt að bæta fleirum á listann sem hafa einhverntíman verið með okkur í bekk, hvort sem það var í stuttan eða langan tíma. Því fleiri, því betra party þegar af verður!

Þeir sem vilja fá aðgang að síðunni er bent á að senda á mig póst, bmb3@hi.is og ég svara um hæl.

Hvet ykkur líka til að setja inn pósta, eða jafnvel myndir.....

Brynjar

10 ára útskriftarafmæli 2009

05. júní 2008 klukkan 22:12
Jæja eins og Helga Rebekka hefur nefnt í færslunni hér á undan komum við til með að eiga 10 ára gagnfræði afmæli eftir eitt ár. Ég veit að þetta er ótrúlegt, en satt er það.

Mig langar að leggja til að skipuð verði nefnd sem mun sjá um að skipuleggja fögnuðinn sem að sjálfsögðu verður haldinn á Ísafirði. Það er því nokkuð ljóst að þeir meðlimir árgangsins sem búa fyrir vestan munu bera þungan af skipulagningunni. Ég legg því til að nefndina muni skipa þrír einstaklingar sem eru búsettir á Ísafirði og tveir sem eru búsettir annarstaðar. Mín tillaga hljómar svona:

Helga Rebekka Stígsdóttir Ísafirði
Ástrún Jakobsdóttir Ísafirði
Guðný Harpa Henrýsdóttir Ísafirði

Brynjar Már Brynjólfsson Reykjavík
Þórunn Arna Kristjánsdóttir Reykjavík

Nú legg ég þessa tillögu í ykkar hendur, mótmælið ef þið viljið mótmæla - samþykkið ef þið viljið samþykkja. Ég lít líka á þögn sem sama og samþykki. 

Frábært, okei takk. 
Brynjar Már. 

Hittingur að ári

22. maí 2008 klukkan 22:37
Hvernig líst fólki á hitting að ári? Þá stóran hitting. Þar sem við munum nú eiga 10 ára gagnfræðiafmæli?

Kv. að vestan,
Helga Rebekka